Segðu því bara hvaða liði þú fylgdist með. Það sækir söguna um allt mótið —
hvern leik, stöðuna, greininguna — parar hana við deilda myndaalbúmið þitt,
og býr til tvo minningagripi úr einni sameiginlegri heimild:
lifandi, lokað mælaborð og ljósa, prentvæna minningabók í PDF.
Tveir Claude Code skillar í einu repo · gert sem raunveruleg tilraun yfir eina
mótshelgi
(KA-2 á TM-mótinu í Vestmannaeyjum, júní 2026) og síðan almennt yfirfært.
eftir Magnús Smára Smárason · smarason.is
┌──────────────────────────────────────────────────────────────────┐
│ ÞÚ GEFUR AÐEINS: liðið sem þú fylgdist með + hlekk á albúm │
└──────────────────────────────────────────────────────────────────┘
│ │
┌───────────────┘ └───────────────┐
▼ ▼
┌─────────────────────┐ ┌──────────────────────┐
│ ÚRSLITAVEITA (skipt-│ │ MYNDAHEIMILD (adapter)│
│ anleg) t.d. tmmotid │ │ GPhotos·Dropbox·mappa │
└──────────┬──────────┘ └───────────┬──────────┘
│ erindreki + Python á millibili │ headless / API / FS
│ skrapar aðeins spilaða leiki · ber saman · byggir við breytingu frumrit + EXIF
▼ ▼
╔═══════════ SKILL 1 · tmmot-results ═════════════════╗ ╔════ SKILL 2 · tmmot-album ════════╗
║ leikir · staðan · form hvers leiks ║ ║ EXIF-tími → hvaða leikur ║
║ heildargreining mótsins · liðið í samhengi ║ ║ STAÐBUNDIÐ myndalíkan (Gemma 3 ║
║ (valfrjálst) púls pabbans á hverjum leik ║ ║ 12B, á eigin vélbúnaði) lýsir og ║
╚════════════════════════╤════════════════════════════╝ ║ raðar — myndir fara aldrei út ║
│ ║ eigandinn velur forsíðu + gallerí ║
▼ ╚═══════════════╤═══════════════════╝
┌───────────────────┐ │
│ data.json │ ◄────────── ein sameiginleg heimild ─────┘
└─────────┬─────────┘
┌───────────────┴────────────────┐
▼ ▼
┌──────────────────────┐ ┌──────────────────────────┐
│ LIFANDI MÆLABORÐ │ │ MINNINGABÓK Í PDF │
│ núll-háð Node-þjónn │ │ Quarto + xelatex │
│ PIN-lokað · liquid │ │ LJÓS · prentvæn │
│ glass · dökkt (skjár) │ │ sömu fontar + merki │
└──────────────────────┘ └──────────────────────────┘
Ein data.json → tveir miðlar, hvor sniðinn að sínum: dökkt liquid-glass á skjánum,
ljós og blek-spör á pappír. Sömu fontar og sama merki, svo þeir lesast sem ein heild.
Þetta er ekki bara minningabók — þetta er legó með leiðbeiningum. Leikandi, verkleg leið til að ná tökum á stórum mállíkönum, þar sem afurðin er tilfinningalega þess virði (saga barnsins þíns af mótinu) — svo þú klárar hana, og lærir kerfið í verki um leið. Leiðbeiningarnar fylgja með; allir ættu að geta sett þetta saman.
Og það er ekki bundið við fótbolta. Hvaða viðburður sem er dugar — handbolti, fimleikar, útskrift, afmæli, ferðalag — alls staðar þar sem til er úrslita-/dagskrárveita og deilt myndaalbúm. Skiptu kubbunum út, fylgdu leiðbeiningunum, byggðu þína eigin minningu.
| Skill | Gerir | Þú gefur því |
|---|---|---|
tmmot-results |
Sækir leiki liðsins, stöðuna og heildargreiningu mótsins af opinberu úrslitasíðunni. Keyrir á millibili; byggir aðeins við raunverulega breytingu. | liðsnafnið + slóð úrslitasíðunnar |
tmmot-album |
Harvestar deilda albúmið, raðar myndum á leiki eftir tíma, lýsir þeim með staðbundnu myndalíkani, lætur þig velja forsíðu + gallerí, og byggir lokaða mælaborðið + ljósu PDF-bókina. | albúm-hlekkinn + gögnin úr skilli 1 |
Settu skills/tmmot-results/ og skills/tmmot-album/ í Claude Code ~/.claude/skills/
(eða í .claude/skills/ verkefnis). Svo segirðu bara hvað þú vilt.
- Óháð söluaðilum (vendor-agnostic) — staðall hjá Sumarhúsum. Ekkert er læst við einn þjónustuaðila. Myndaheimildin er adapter: Google Photos er aðeins einn — settu Dropbox, iCloud deilt albúm, möppu á disknum (alheims-leiðin, virkar strax), eða S3-fötu í staðinn. Sama gildir um úrslitaveituna, myndalíkanið (Gemma á eigin vélbúnaði, eða hvað sem er) og hýsinguna. Skiptu hverju sem er út.
- Myndirnar eru ófalsaðar — og sé einhverju breytt er það tekið fram. Engri mynd er breytt af kerfinu umfram það sem síminn sem tók hana gerir sjálfur. Myndalíkanið aðeins lýsir og raðar; það breytir aldrei mynd. Sé mynd breytt umfram það, segir síðan það skýrt.
- Persónuvernd fyrst. Börn á opnu interneti →
noindex, robotsDisallow: /, allt (þ.m.t. albúm-hlekkurinn) bak við PIN, engin nöfn barna nema í kveðjum sem eigandinn skrifar sjálfur. Myndalíkanið keyrir á þínum vélbúnaði; myndir fara aldrei út af honum. - Engin fals-græn gögn. Aðeins leikir sem voru raunverulega spilaðir; „síðast uppfært" sýnilegt; handfærðir leikir merktir sem handfærðir.
- Sannreyndu alla síðuna í alvöru vafra eftir hverja breytingu. (Ein tilvísun utan skóps þurrkaði eitt sinn út alla JS-rendaðu síðuna á meðan einn reitur sást enn — að lesa einn reit er ekki sannreyning.)
- Ljóst fyrir prent, gler fyrir skjá. Dökkt full-bleed er rangt fyrir prentaða bók.
# 1. úrslit — sæktu mótið fyrir liðið þitt
python3 skills/tmmot-results/tools/refresh-urslit.py # breyttu TEAM + slóð efst
# 2. myndir — harvestaðu deilda albúmið, raðaðu á leiki
bash skills/tmmot-album/tools/harvest-album.sh <albúm-hlekkur> ~/Pictures/<mót>
python3 skills/tmmot-album/tools/match-photos.py
# 3. velja + byggja — staðbundinn mynda-editor → ljós PDF + síðu-gallerí + deploy
python3 skills/tmmot-album/tools/editor.py # → http://localhost:8765
# 4. síðan — keyrir hvar sem Docker + göng keyra
cp -r skills/tmmot-album/templates/* apps/<mót>/ && docker compose up -d --buildHeil sýnis-minningabók: demo/minningabok-demo.pdf.
Allt í henni er uppspuni — liðið Eldey U11, úrslitin og myndirnar (gerðar með
myndalíkani, ekkert raunverulegt fólk) — svo óhætt er að deila henni á meðan hún
sýnir nákvæmlega það sem kerfið býr til úr alvöru móti. Endurbyggðu hana sjálf með
python3 demo/build-mock.py.
Sérhver mynd á alvöru síðu er ófölsuð umfram það sem síminn gerir; sýnishorns- myndirnar eru skýrt merktar sem gerðar. Sé einhverju breytt er það tekið fram.
Gerðu það að þínu. Skiptu út opinberu úrslitasíðunni, albúm-heimildinni, staðbundna
líkaninu, litunum og merkinu. Hryggjarstykkið — ein data.json → lokuð skjáupplifun +
ljós prentanleg bók, sannreynt í alvöru vafra — er það sem er þess virði að halda.
MIT-leyfi. Gert með Claude Code.
