Hér má nálgast allt námsefni, dæmi og verkefni í áfanganum vefforritun 1 kenndan við HÍ haustið 2025.
| Vika | Mánudagur | Viðfangsefni | Verkefni | Skil |
|---|---|---|---|---|
| 1 | 18. ágúst | Kynning; inngangur; HTML; Netlify | Verkefni 1 | |
| 2 | 25. ágúst | Element; töflur, listar, form; að skrifa HTML; aðgengi & SEO | Verkefni 2 | Verkefni 1 |
| 3 | 1. september | CSS; box model; specificity og cascade; visual formatting; Letur & litir | Verkefni 3 | Verkefni 2 |
| 4 | 8. september | Flexbox; CSS virkni & stuðningur | Verkefni 4 | Verkefni 3 |
| 5 | 15. september | Skalanlegir vefir; hönnun; grid; kvikun | Verkefni 5; Hópverkefni 1 | Verkefni 4 |
| 6 | 22. september | Gestafyrirlestur; node.js & npm; Sass & Stylelint; CSS í stærri verkefnum | Verkefni 6 | Verkefni 5 |
| 7 | 29. september | Git & GitHub; JavaScript: gildi, týpur, virkjar | Verkefni 6 | |
| 8 | 6. október | JavaScript: stýriskipanir, föll, fylki, hlutir | Verkefni 7 | |
| 9 | 13. október | Einingar; forritun á vef: DOM og atburðir | Verkefni 8 | Verkefni 7 |
| 10 | 20. október | Ósamstillt forritun; HTTP & form; ajax; eslint | Verkefni 9; Hópverkefni 2 | Verkefni 8; Hópverkefni 1 |
| 11 | 27. október | Tæki & tól; villumeðhöndlun; reglulegar segðir; fallaforritun | Verkefni 9 | |
| 12 | 3. nóvember | Hlutir; HTML5 og Web APIs; prófanir | Verkefni 10 | |
| 13 | 10. nóvember | Samantekt og upprifjun; aðstoð; umræður | Verkefni 10 | |
| 14 | 17. nóvember | Upplýsingar um lokapróf; aðstoð; umræður | Hópverkefni 2 |
Nánar er fjallað um kennsluáætlun og námsefni í viku 1 og sýnd yfirferð á námsefni hér á GitHub.
Kennslualmanak háskólaárið 2025–2026.
Lokapróf verður haldið föstudaginn 5. desember 2025 kl. 13:30 - 16:30.
Prófið er staðpróf og fer fram í Inspera.
Hægt er að nálgast prufupróf á Inspera. Farið verður yfir prófið í fyrirlestri 10. eða 17. nóvember.
Hægt er að nálgast eldri próf á Uglu undir „Prófasafn“.
Fjallað um lokapróf í fyrirlestri 8.1.
Hægt er að sækja um Chromebook til að taka prófið á.
Hvert vikublað samanstendur af:
- Fyrirlestrum vikunnar, vísun í upptekna fyrirlestra og hugsanlega aukaefni tengt þeim.
- Námsefni og lesefni fyrir vikuna.
- Dæmi tengd fyrirlestrum og lesefni, skoða ætti og keyra dæmi meðfram uppteknum fyrirlestrum. Farið verður yfir að einhverju leiti í tíma.
- Lykilhugtök sem farið er yfir í vikunni í námsefni og fyrirlestrum.
- „Verkefni vikunnar“ inniheldur verkefni fyrir vikuna sem nemendur vinna: í tímum, dæmatímum og sjálfstætt.
Allt námsefni og lesefni er undir namsefni/.
Hægt er að skoða dæmi á sér vef.
Ekki er heimilt að nota stór mállíkön til að vinna verkefni í námskeiðinu, sjá nánar um notkun í námskeiðinu.
Samansafn af öllum lykilhugtökum, lýsingu á þeim og tengingar við vikur.
Fyrirlestrar eru haldnir 15:00-17:20 á mánudögum.
Námsefni vikunnar er sett inn a.m.k. vikunni áður. Fyrirlestrarnir sjálfir fara í nánari yfirferð á mikilvægum atriðum úr fyrirlestrum, yfirferð á dæmum og umræður.
Upptökur af öllum fyrirlestrum á YouTube.
Öll dæmi eru undir viðeigandi námsefni í daemi/ möppu.
Til að sækja dæmi er hægt að sækja allt efni frá þessu GitHub repo með því að nota „download“ virkni eða opna vef útgáfu af dæmum þar sem hægt er að skoða þau beint í vafra.
- Vika 1, 18.—24. ágúst 2025
- Kynning; inngangur; HTML; Netlify
- Vika 2, 25.—31. ágúst 2025
- Element; töflur, listar, form; að skrifa HTML; aðgengi & SEO
- Vika 3, 1.—7. september 2025
- CSS; box model; specificity og cascade; visual formatting; Letur & litir
- Vika 4, 8.—14. september 2025
- Flexbox; CSS virkni & stuðningur
- Vika 5, 15.—21. september 2025
- Skalanlegir vefir; hönnun; grid; kvikun
- Vika 6, 22.—28. september 2025
- Gestafyrirlestur um hönnun; node.js & npm; Sass & Stylelint; CSS í stærri verkefnum
- Vika 7, 29. september–5. október 2025
- Git & GitHub; JavaScript: gildi, týpur, virkjar
- Vika 8, 6.–12. október 2025
- JavaScript: stýriskipanir, föll, fylki, hlutir
- Vika 9, 13.–19. október 2025
- Einingar; forritun á vef: DOM og atburðir
- Vika 10, 20.–26. október 2025
- Ósamstillt forritun; HTTP & form; ajax; eslint
- Vika 11, 27. október–2. nóvember 2025
- Tæki & tól; villumeðhöndlun; reglulegar segðir; fallaforritun
- Vika 12, 3.–9. nóvember 2025
- Hlutir; HTML5 og Web APIs; prófanir
Verkefni eru sett fyrir formlega í fyrirlestri á mánudegi (þau gætu verið gerð aðgengileg fyrr) og skal skila fyrir lok fimmtudags (seinasta lagi 23:59) vikunni eftir. Sýnilausn er gerð aðgengileg á föstudegi eftir skil.
Öll skil fara fram á Canvas.
- Verkefni 1 (HTML #1), setja upp ritil, gera síðu aðgengilega á vefnum gegnum Netlify.
- Sett fyrir 18. ágúst, skilist 28. ágúst.
- Engin sýnilausn.
- Verkefni 2 (HTML #2), HTML element, aðgengi og SEO.
- Sett fyrir 25. ágúst, skilist 4. september.
- Sýnilausn, aðgengileg 5. september.
- Verkefni 3 (CSS #1), CSS grunnur.
- Sett fyrir 1. september, skilist 11. september
- Sýnilausn, aðgengileg 12. september.
- Verkefni 4 (CSS #2), CSS flexbox.
- Sett fyrir 8. september, skilist 18. september
- Sýnilausn, aðgengileg 19. september.
- Verkefni 5 (CSS #3), CSS grid.
- Sett fyrir 15. september, skilist 25. september.
- Sýnilausn, aðgengileg 26. september.
- Verkefni 6 (CSS #4), CSS í stærri verkefnum.
- Sett fyrir 22. september, skilist 2. október.
- Sýnilausn, aðgengileg 3. október.
- Verkefni 7 (JavaScript #1), JavaScript grunnur.
- Sett fyrir 6. október, skilist 16. október
- Sýnilausn, aðgengileg 17. október.
- Verkefni 8 (JavaScript #2), JavaScript, DOM og atburðir.
- Sett fyrir 13. október, skilist 23. október
- Sýnilausn, aðgengileg 24. október.
- Verkefni 9 (JavaScript #3), JavaScript, fetch og DOM.
- Sett fyrir 20. október, skilist 30. október
- Verkefni 10 (JavaScript #4), forritun með JavaScript tólum og Web APIs.
- Sett fyrir 27. október, skilist 6. nóvember
- Hópverkefni 1.
- Sett fyrir um miðjan september, skilist 23. október.
- Hópverkefni 2.
- Sett fyrir 20. október, skilist um miðjan nóvember fyrir lok misseris.
Dæmatímar eru í vikum 2–14.
Sjá á Uglu og Canvas síðu námskeiðs.